Húsnæðislán
Sjóðfélagar sem greitt hafa til samtryggingar- eða séreignardeildar Gildis geta tekið húsnæðislán að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Athugið að Gildi er enn með til skoðunar áhrif nýlegra dóma Hæstaréttar um lánaskilmála fasteignalána bankanna. Á meðan veitir sjóðurinn ekki lán með breytilegum vöxtum – hvorki verðtryggð né óverðtryggð. Sjóðfélögum standa áfram til boða verðtryggð lán á föstum vöxtum.

Ný lán
Upplýsingar um ný lán, bæði vegna kaupa á fasteign og endurfjármögnunar.
Breyta láni
Allt um skilmálabreytingar, t.d. vegna frystingar lána og úrræði vegna greiðsluerfiðleika.
Lánareiknivél
Reiknaðu dæmið til enda í lánareiknivél Gildis.
Lánakjör
Kynntu þér kjör á lánum Gildis sem og þróun á vaxtakjörum.
Reiknaðu húsnæðislánið
Með því að slá inn fjárhæð í kaupverð má stilla upp mismunandi lánum og sjá áætlaða greiðslubyrði og hlutfallstölu kostnaðar út frá mismunandi forsendum. Útreikningurinn er aðeins til viðmiðunar.
Athugið að ekki fæst lán sem nemur hærri fjárhæð en 100% af brunabótamati að viðbættu lóðarmati.
Athugið einnig að lán skiptast í grunnlán (60%) og viðbótarlán (60%–70%) eftir veðsetningarhlutfalli. Hámarksfjárhæð láns (þ.m.t. viðbótarláns) er 75 milljónir króna.