Breyta láni

Lánabreytingar eru fyrir sjóðfélaga sem eru með lán hjá Gildi. Eftir útgáfu láns geta komið upp aðstæður sem kalla á breytingar, til dæmis vegna kaupa á nýju húsnæði eða tímabundnar breytingar á tekjum vegna fæðingarorlofs eða atvinnuleysis. Öllum breytingum á lánum þarf að þinglýsa og í sumum tilfellum þarf samþykki frá síðari veðhafa og ef til vill þarf nýtt greiðslumat.

Eftirtaldir möguleikar standa lántakendum til boða:*

*Vakin er athygli á að ekki er hægt að hækka lánsupphæð, breyta samsetningu óverðtryggðra/verðtryggðra lána eða breyta vaxtaformi lána með skilmálabreytingu. Ef lántaki vill breyta fyrrnefndum skilmálum lána, þarf að gera það í gegnum endurfjármögnun þar sem sótt er um nýtt lán með nýjum forsendum og eldra lánið greitt upp. Smelltu hér til að lesa þér til um endurfjármögnun.