Fjárfestingarleiðir

Einstaklingur gengur eftir hellulagðri götu og horfir á símann

Það er persónubundið hvernig fólk hugsar um sparnaðinn sinn og þess vegna skiptir máli að geta valið á milli góðra kosta.

Þess vegna býður Gildi upp á fjölbreyttar fjárfestingarleiðir þannig að þú finnir örugglega leið sem hentar þér!

Sækja um séreignarsparnað hjá Gildi

Sérsniðin Eign að þínum þörfum

Gildi býður upp á fimm mismunandi fjárfestingarleiðir þar sem hægt er að velja hversu mikið þú vilt ávaxta í hlutabréfum eða skuldabréfum. Þú getur einnig takmarkað áhættu með verðtryggðri leið eða ávaxtað alla fjármuni þína í erlendri mynt. Kynntu þér fjölbreyttar fjárfestingarleiðir Gildis hér:

Eign – 70/30

Í Eign – 70/30 eru 70% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 30% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja taka meiri áhættu með von um aukna ávöxtun yfir lengri tíma.

Nánari upplýsingar um Eign – 70/30Eign – 50/50

Í Eign – 50/50 eru 50% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 50% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja góða ávöxtun yfir lengri tíma en um leið takmarka áhættu.

Nánar um Eign – 50/50Eign – 20/80

Í Eign – 20/80 eru 20% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 80% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja trygga ávöxtun með takmarkaðri áhættu.

Nánar um Eign – 20/80Eign – Verðtryggð

Í Eign – Verðtryggð eru allar eignir ávaxtaðar í verðtryggðum innlánum. Leiðin hentar einkum þeim sem vilja trygga ávöxtun yfir styttri tíma.

Nánar um Eign – VerðtryggðEign – Erlend

Í Eign – Erlend er allt eignasafnið ávaxtað í erlendri mynt. Um 60% eignanna er ávaxtað í erlendum hlutabréfum og 40% í erlendum skuldabréfum.

Nánar um Eign – Erlend

Eign – Aldurstengd

Eign – Aldurstengd er ekki fjárfestingarleið heldur sjálfvirk lausn fyrir þá sem það vilja.

Skýringarmynd af Eign – Aldurstengd: undir 48 ára er sparnaðurinn í Eign – 70/30, frá 48 til 57 ára í Eign – 50/50 og frá 58 ára aldri í Eign – 20/80.

Í Eign – aldurstengd passa sérfræðingar Gildis upp á að þú sért ávallt í þeirri fjárfestingarleið sem hentar þér best. Þú færist milli fjárfestingarleiða eftir aldri sbr. meðfylgjandi mynd, en þetta tryggir að þín Eign er alltaf á réttum stað.