Iðgjaldaskil

Launagreiðandi ber ábyrgð á að iðgjöld skili sér til hlutaðeigandi lífeyrissjóðs.

Launagreiðandi ber ábyrgð á að iðgjöld skili sér til hlutaðeigandi sjóðs; 4% frá launþega og 11,5% frá launagreiðanda. Alls 15,5% af heildarlaunum hvers og eins.

Ath. að í einstökum kjarasamningum er þó kveðið á um lægra framlag, t.d. á það við um kjarasamning sjómanna.

Til að tryggja rétt skil þarf viðkomandi að bera saman launaseðla sína og greiðsluyfirlit frá lífeyrissjóðnum. Verði einhver misbrestur á geta lífeyrisréttindi glatast.

Greiðslur í lífeyrissjóð hefjast í næsta mánuði eftir 16 ára afmæli og lýkur í þeim mánuði sem 70 árin eru fyllt. Berist greiðslur af sjóðfélaga sem náð hefur 70 ára aldri eru þær lagðar inn í séreignardeild Gildis í nafni sjóðfélaga.

Gott að vita