Bankakröfur

Hægt er að láta kröfu stofnast í netbanka eftir að skilagrein hefur verið send til Gildis. Það gerist þó ekki fyrr en skilagreinin hefur verið yfirfarin. Ef misræmi kemur í ljós stofnast krafan samkvæmt yfirfarinni skilagrein!

Ath. að launagreiðandi ber ábyrgð á greiðslu iðgjalda til sjóðsins. Það á einnig við þrátt fyrir að krafa stofnist ekki í netbanka eða falli þar niður.

Ef iðgjöldin eru greidd eftir eindaga reiknast dráttarvextir.

Ef eldri iðgjöld eru í vanskilum þá gildir eftirfarandi:

Séu eldri iðgjöld í vanskilum (en hafa ekki verið send til löginnheimtu) er greiðslu á bankakröfu ráðstafað inn á eldri iðgjöld. Fyrst til greiðslu áfallins kostnaðar og dráttarvaxta og síðan inn á höfuðstól eins og til fellur.

Séu eldri iðgjöld í vanskilum og þau komin í löginnheimtu þegar bankakrafa er greidd, er greiðslu ráðstafað inn á eldri vanskil svo sem greinir í 1. tölulið séu slík vanskil til staðar, en annars inn á iðgjöld samkvæmt viðkomandi bankakröfu/skilagrein. Gildi-lífeyrissjóði er þó ávallt heimilt að ráðstafa greiðslunni til lækkunar á kröfu sem sætir löginnheimtu, sbr. nánar gr. 9.10. í samþykktum Gildis-lífeyrissjóðs.

Gott að vita