29. september 2026

Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka 30. október

Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána* um 0,25% í samræmi við nýlega hækkun á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands. Breytingin tekur gildi föstudaginn 30. október næstkomandi. Aðrir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.

Eftir breytinguna verður vaxtatafla sjóðsins eftirfarandi:

GrunnlánViðbótarlán
(allt að 60% veðhlutfall)(60-70% veðhlutfall)
Óverðtryggt – breytilegir vextir9,50%10,25%
Verðtryggt – breytilegir vextir4,30%5,05%
Verðtryggt – fastir vextir4,30%5,05%

*Breytingin tekur aðeins til eldri sjóðfélagalána þar sem sjóðurinn veitir ekki lán með breytilegum vöxtum í kjölfar dóms Hæstaréttar sem féll á síðasta ári um skilmála í lánum Íslandsbanka.

Til baka í fréttir